Laugardagur, 22. desember 2007
Ert þú beittur heimilisofbeldi ?
Skoðunarkönnun fyrir karla í sambúð með konum
Sjá skoðunarkönnun hér til hliða
Á eitthvað af neðantöldu við um maka þinn?
- Óttastu hana undir einhverjum kringumstæðum?
- Er hún uppstökk, skapbráð og/eða fær bræðisköst?
- Verður hún auðveldlega reið undir áhrifum áfengis?
- Reynir hún að koma í veg fyrir að þú farir þangað sem þú vilt fara eða að þú stundir vinnu, skóla eða áhugamál?
- Fylgist hún með þér hvar og hvenær sem er?
- Ásakar hún þig sífellt um að vera sér ótrú?
- Gagnrýnir hún þig, vini þína og/eða fjölskyldu?
- Ásakar hún þig stöðugt - ekkert sem þú gerir er rétt eða nógu vel gert?
- Segir hún að eitthvað sé að þér, þú sért jafnvel geðveikur?
- Gerir hún lítið úr þér fyrir framan aðra?
- Hefur hún yfirráð yfir fjármálum ykkar og krefst skýringa á hverri krónu?
- Eyðileggur hún persónulegar eigur þínar af ásettu ráði?
- Hrópar/öskrar hún á þig eða börnin?
- Ógnar hún þér með svipbrigðum, hreyfingum eða bendingum?
- Hótar hún að skaða þig, börnin eða aðra þér nákomna?
- Þvingar hún þig til kynlífs?
- Hefur hún ýtt við þér, hrint þér, slegið til þín eða slegið/barið þig eða börnin?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:44 | Facebook
Eldri færslur
Færsluflokkar
Spurt er
Tenglar
Kynlífsiðnaðurinn
- Sex work and Sexual Exploitation in the European Union
- The International Union of Sex Workers
- Backlash Bresk síða
Frjálslyndir Femínistar
- ifeminists.net
- FEMINISTS AGAINST CENSORSHIP Málfrelsis femínistar
Öfga femínizmi og kynjahatur
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég var kvæntur einni í nokkur ár og ég held að ég geti svarað öllum spurningunum játandi þótt ekki sé ég stoltur af því, en ég reyndi...............
Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.12.2007 kl. 00:10
þetta eru spurningar af vef kvennaathvarfs, nema að ég setti karl í stað konu og konu í stað karls.
Ég veit að ofbeldi á heimilum sé ekki eingöngu ofbeldi karla á konum heldur jafnvel í jafnmiklum mæli ofbeldi kvenna á körlum. Munurinn er sá að karlar láta sig hafa það og svo er ekkert karlaatkvarf að hringja í né leita til. Andlegt ofbeldi er sist betra en líkamlegt. En það þykir víst óþarfi að sinna þeim og þeir eiga að bera harma sína í hljóði
GeirR, 26.12.2007 kl. 02:04
Sæll Geir.
Þú þyrftir að birta þennan pistil aftur eftir áramót og fá umræður.
Annars......gleðilegt ár!!
Margrét St Hafsteinsdóttir, 28.12.2007 kl. 18:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.